16.11.05

Úr minningargreinum

· Hann giftist eftirlifandi eiginkonu sinni og átu þau tvö börn.
· Gönguferðin þeirra varð styttri en menn vonuðu. Banvænn sjúkdómur beið hennar bak við stein og sló hana fljótt til jarðar.
· Hún hafði það sterka skapgerð að smávegis rigningarsuddi setti hana ekki úr jafnvægi.
· Hann var sannur íslendingur og dó á 17. júní.
· Þrátt fyrir góða greind gekk hún aldrei í kvenfélag.
· Það er löngu vitað mál að bestu og skemmtilegustu vinina eignast maður í lúðrasveit.
· Hann skrapp úr vinnu til að fara í þrekpróf í Hjartavernd, en kom þaðan liðið lík.
· Ég bið þann sem lífið gaf að hugga, styrkja og bæta aðstandendum skaðann.
· Tók hann fráfall konu sinnar mjög nærri sér vegna barnanna.
· Þar voru m.a. María Rögnvaldsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir frá Folafæti. Enda þótt María væri þá hálfslæm í fæti lék hún við hvern sinn fingur.
· Helga lést svo þennan dag kl. 4. Helga hafði ætlað að eyða þessum degi í annað.
· Í dag kveðjum við kæran samstarfsmann og félaga. Hann tók sér tveggja daga frí til að kveðja þennan heim.
· Og má segja að ekki setti hún svo skál með tvíbökum á borð að ekki stafaði af því mýkt og listfengi.
· Orð þessi eru skrifuð til að flytja Sveini (líkinu) kveðju og þakkir frá tengdafólki hans og ekki síður frá tengdamóður hans, þótt nú nálgist 20. árið frá fráfalli hennar.
· Hún bjó manni sínum gott heimili og ól honum 9 hraust börn, þar af tvö á sjómannadaginn.
· Ágústa giftist ekki og eiginaðist ekki börn í venjulegum skilningi þess orðs.
· Á þessum fjölbreytta lífsferli sínum kynntist Guðjón mörgum mönnum af ýmsum þjóðernum, þ. á m. Indíánum og Kínverjum. Hann lærði tungumál þeirra að meira eða minna leyti, einkum þó ensku og norðurlandamálin.

2 ummæli:

baldur sagði...

Minningargreinar eru oft á tíðum stórkostlegar. Það ætti einhver að safna gullmolum af þessu tagi og gefa út.

ásdís maría sagði...

Sammála!